LLA setur upp Skilaboðaskjóðuna!
Skilaboðaskjóðan er ævintýrasöngleikur byggður á samnefndri bók Þorvaldar Þorsteinssonar sem kom út árið 1986 og naut mikilla vinsælda. Söngleikurinn var frumsýndur á stóra sviði Þjóðleikhússins í nóvember árið 1993 í leikstjórn Kolbrúnar Haldórsdóttur og sló eftirminnilega í gegn. Jóhann G. Jóhannsson, tónlistarstjóri Þjóðleikhússins, samdi tónlist fyrir verkið við texta Þorvaldar og vorið 1994 kom út geisladiskur með tónlistinni í flutningi leikara og hljómsveitar leikhússins.
Skilaboðaskjóðan segir frá Putta og Möddumömmu sem eiga heima í Ævintýraskóginum þar sem öll ævintýrin gerast. Þegar Nátttröllið rænir Putta til að breyta honum í tröllabrúðu, sameinast allir íbúar skógarins um að bjarga honum áður en sólin sest. En nornin, úlfurinn og stjúpan vilja ekki vera með og þá eru góð ráð dýr.
Skráning á haustönn 2017 stendur yfir og lýkur þann 4. september. Hér má finna upplýsingar um námskeiðin og leiklistarskólann.