List án landamæra 2012
02.05.2012
Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar Akureyrarbæjar sem setur hátíðina. Nemendur í
tónlistarhópi Fjölmenntar spila og syngja undir stjórn Láru Sóleyjar Jóhannsdóttur, afar fjölmennur leikhópur Fjölmenntar
sýnir leikritið um Mjallhvíti og dvergana sjö í leikstjórn Sögu Jónsdóttur og síðast en ekki síst verður
frumflutt nýtt lag eftir tónskáldið Jón Hlöðver Áskelsson og er lagið tileinkað hátíðinni.Lagið er flutt
af Jóni Hlöðveri sjálfum, sem sest nú aftur við píanóið eftir mikla fjarveru, Barnakór Giljaskóla undir stjórn Ástu
Magnúsdóttur syngur og fleiri hljóðfæraleikara taka þátt í flutningnum.
Nemendur Fjölmenntar og Hæfingastöðvarinnar við Skógarlund opna sýningu í Hofi á munum sem þau hafa unnið í vetur. Að lokinni dagskrá verður boðið upp á léttar veitingar. Opnunarhátíðin hefst sem fyrr segir klukkan 14 og eru allir hjartanlega velkomnir.
Nemendur Fjölmenntar og Hæfingastöðvarinnar við Skógarlund opna sýningu í Hofi á munum sem þau hafa unnið í vetur. Að lokinni dagskrá verður boðið upp á léttar veitingar. Opnunarhátíðin hefst sem fyrr segir klukkan 14 og eru allir hjartanlega velkomnir.
Af öðrum dagskrárliðum Listar án landamæra á Norðurlandi má nefna Geðvegginn í Pennanum/Eymundssonen þar vekur Ragnheiður Arna Arnarsdóttir athygli á geðsjúkdómum með því að skoða þekkt fólk og geðsjúkdóma, í Hæfingastöðinni í Skógarlundi verður opið hús og myndlistasýning 10. og 11. maí og laugardaginn 19. maí vígir hópurinn Geðlist Sám smámunavörð sem staðsettur verður við Smámunasafnið í Eyjafirði en hópurinn hefur áður gert Safnvörðinn sem stendur við Safnasafnið á Svalbarðseyri og Skógarvörðinn sem verndar Kjarnaskóg á Akureyri.