Fara í efni

LMA sýnir Galdrakarlinn í Oz í Hofi | Æfingar hafnar í Hamraborg

Leikfélag Menntaskólans á Akureyri er þekkt fyrir metnaðarfullar leiksýningar og hefur félagið sett upp sýningar ár hvert frá árinu 1936. Í ár setja þau upp söngleikinn Galdrakarlinn í Oz hjá okkur í Hofi og verður frumsýning þann 14. mars kl 20:00. Þau eru mætt til okkar í hús og er mikið líf og fjör í kringum uppsetninguna, enda koma hátt í 90 nemendur Menntaskólans á Akureyri að uppsetningunni, hvort sem það er með leik, dansi, tónlist, markaðssetningu, búninga- og leikmyndahönnun eða hárgreiðslu og förðun. Dóróthea uppgötvar töfra Oz á ný í Hofi 2025, í leikstjórn Egils Andrasonar.


Nemendur MA á æfingu í Hofi. 

Galdrakarlinn í Oz er byggður á barnabók L. Frank Baum sem kom út um aldamótin 1900. Leikgerðin er byggð á íslenskri þýðingu Bergs Þórs Ingólfssonar, leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar, og á leikgerð eftir John Kane. 


Allur Hópurinn í Hamraborg í Hofi.

Fellibylur feykir húsi Dórótheu til framandi töfralands og hún, ásamt hundinum Tótó, vill komast aftur heim. Hún ákveður að leita hjálpar hjá Galdrakarlinum í Oz og á leiðinni til hans hittir hún heilalausu Fuglahræðuna, hjartalausa Tinkarlinn og huglausa Ljónið. Það eru því fleiri sem þurfa á hjálp að halda og saman halda vinirnir í mikla ævintýraferð. Sýningin er fyndin og hjartnæm og sannkölluð veisla fyrir allan aldur. Með glæsilegum söng og dans, litríkum búningum og dáleiðandi leikmynd eru leikhúsgestir dregnir inn í töfrandi heim Oz. Hæfileikar og metnaður unga fólksins glæða söguna lífi.

Ath! yngstu leikhúsgestunum gætu þótt einstaka atriði skelfileg.

Miðasala fer fram hér á mak.is

Til baka