Mikill áhugi fyrir Gróðurhúsi LA
Umsóknarfrestur um fósturverkefni Leikfélags Akureyrar leikárið 2018-2019 rann út þann 31. október. Alls bárust 11. umsóknir. Nú mun hið nýstofnaða Listráð LA taka umsóknirnar til umfjöllunar. Vonast er til að niðurstöður liggi fyrir í janúar 2018. Með fósturverkefnum LA nást þau markmið félagsins að rækta hæfileika ungs listafólks í frumsköpun í sviðslistum, að vera gróðurhús fyrir hugmyndir, staður þar sem draumar rætast. Rödd ungs fólks er mikilvæg og skapa þarf tækifæri fyrir unga listamenn til að eiga stefnumót við áhorfendur. Við viljum að spurningum og rannsóknum borgaranna sé veittur skapandi vettvangur í leikhúsinu. Þau sviðslistaverkefni sem sem valin eru verða hluti af leikárinu 2018-2019.
Umsóknir þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði. Verkefnið verður að vera frumsamið sviðslistaverkefni og umsækjendur eða efnistök hafi sterka tengingu við Norðurland. Umsækjendur verða að vera atvinnumenn í sviðslistum og auk þess er listrænum stjórnendum falið að gæta umhverfissjónarmiða við sviðsetningu. Tillit skal tekið til vistspors og sóun á hráefnum skal vera í lágmarki og kynjahlutöll skulu vera sem jöfnust innan verkefnisins. Þau verkefni sem veljast í Gróðurhús LA fá aðstoð við skipulagningu og verkefnastjórnun. Þau munu einnig fá aðstoð við gerð kynningarefnis og kynningu á verkefninu á vegum MAk í viðeigandi miðlum. MAK veitir sýningar- og æfingaraðstöðu fyrir verkefnið í Samkomuhúsinu ásamt aðstoð frá miðasölu, framhúsi, tæknideildum, aðgang að tæknibúnaði og aðgang að leikmuna- og búningasafni.
Það er okkar von að Gróðurhús LA verði til þess að búa frumsköpuðum sviðlistaverkefnum vettvang til þess að verða að veruleika og listamönnum að eiga stefnumót við áhorfendur. Þannig styðjum við sviðslistahópa og einstaklinga á svæðinu með því að gefa þeim tækifæri á að koma frumsköpun sinni á framfæri án þess að greiða aðstöðuleigu. LA stuðlar þannig að uppbyggingu öflugrar sviðslistarmenningar og ræktar samband sitt við grasrótarstarf.
Meiri fjölbreytni
Meira líf
Sjáumst í leikhúsinu