Námskeið fyrir þá sem vilja undirbúa sig fyrir prufur - Skráning hefst á mánudaginn
Ungmenna námskeið er glænýtt námskeið á vegum LLA sem ætlað er ungmennum sem vilja undirbúa sig fyrir prufur og inntökupróf!
Námskeiðið hefst 5. september og er ætlað þeim sem vilja undirbúa sig vel yfir prufur leikfélaga menntaskólanna. Farið verður yfir leiklistar-, söng- og dansprufur, bæði fyrir uppsetningar hjá menntaskólum sem og aðrar leiksýningar.
Tilvalið námskeið fyrir þá sem stefna á að fara í prufur fyrir uppsetningarnar menntaskólanna í ár og einnig ef hugurinn á stefnir á framhaldsnám í leiklist, söngleikjum, söng eða dansi í framtíðinni. Meðal annars verður farið í val á eintölum og lögum, hvernig skal undirbúa þau fyrir prufur, dansrútínur og aðferðir við að pikka þær upp. Þá verður svo kallað 'mock audition' þar sem verður hermt eftir prufum. Þá verður líka farið í hvernig vinnusmiðjuprufur virka.
Kennari verður Jónína Björt Gunnarsdóttir, menntuð leikkona og söngkona, en hún hefur leikið, sungið og dansað í Chicago og Vorið vaknar hjá Leikfélagi Akureyrar, auk fjölda annarra verkefna með hinum ýmsu hópum.
Námskeiðið hefst 5. september og lýkur 10. október.
Tímasetning: Þriðjudagar kl. 19:30-22:30
Námskeiðsgjöld: 56.000 kr. - hægt er að skipta í 5 greiðslur.
Skráning hefst mánudaginn 28. ágúst
Skráning fer fram á Sportabler.
Lágmarks fjölda skráninga þarf til að námskeið verði haldið.