Náttúrufólk Götuleikhússins á ferð og flugi
28.06.2021
Ekki missa af Götuleikhúsi Leikfélags Akureyrar í sumar!
Götuleikhúsið verður með viðburð í miðbæ Akureyrar fimmtudaginn 1. júlí klukkan 16. Þá mun Náttúrufólkið fara út á götu. Viðburðurinn hefst við Eymundsson og heldur svo fylktu liði eftir göngugötunni að Ráðhústorgi þar sem skemmtilegir hlutir gerast.
Föstudaginn 2. júlí munu Vopnfirðingar fá heimsókn frá Náttúrufólkinu þegar hópurinn treður upp á Vopnafirði.
Svo er aftur komið að Akureyringum laugardaginn 3. júlí þegar Götuleikhúsið tekur þátt í Gildögum í Listagilinu.
Fylgstu með Götuleikhúsinu á facebook!