Norðurbandalagið frumsýnir í Rýminu
30.06.2014
Fimmtudaginn 3.júlí frumsýnir Norðurbandalagið leikritið Ræflavík. Verkið verður sýnt í Rýminu á Akureyri. Leikritið er fullt af kolsvörtum húmor, er beinskeytt og með alvarlegum undirtón. Miðasala er hafin í Eymundsson og á midi.is. Jón Gunnar leikstýrir.