Nýdönsk í nánd
08.04.2012
Hljómsveitarmeðlimir eru ekki einhamir og bregða sér í ólíklegustu hlutverk í sýningunni. Má þar nefna
hreyfilistabræðurna Kaffa og Konna, Óla Idol, Rokk Harðarson, stærsta gítarleikara í heimi, Bingólf Bjarnar og sönghópinn Take That.
Auk þessa bjóða þeir gestum sínum upp á alvöru tónleika þar sem Nýdanskir rifja upp eitt og annað ógleymanlegt frá
farsælum ferli.
Í sveitinni eru góðir sagnamenn og nú lifna sögurnar við. Hér heyrir
þú sögurnar á bak við lögin og textana, skandalana og stórsigrana.
Höfundar handrits, texta og tónlistar: Nýdönsk
Leikstjóri: Gunnar Helgason