Nýjung hjá LA
06.11.2013
Við höfum fært Borgarasalinn í nýjan búning. Þar er tilvalið að fá sér hressingu fyrir og eftir sýningu enda er barinn opinn til kl 23:00.
Í samvinnu við veitingahúsið Strikið getum við tekið á móti hópum fyrir sýningar. Þannig er hægt er að eiga notalega stund og njóta léttra smárétta og drykkja. Lágmarksfjöldi er 10 manns. Matseðillinn er sem hér segir:
Minni diskur:
Nautaspjót í Teryaki
Kjúklingaspjót marinerað í mangósósu
Súkkulaði kaka með ítölskum margens
1000 kr
Stærri diskur:
Kjúklingaspjót marinerað í mangósósu
Nautaspjót í Teriyaki
Snitta með parmaskinku og pestó
Snitta með rækjum í sweet chili
Súkkulaðikaka með ítölskum marengs
2000 kr