Fara í efni

Nýr starfsmaður – verkefnastjóri kynningarmála

Menningarfélag Akureyrar hefur ráðið Silju Dögg Baldursdóttur til starfa sem verkefnastjóra kynningarmála.

Silja Dögg er með BA gráðu í fjölmiðlafræði og diplómu í verkefnastjórnun Hún starfaði áður hjá Leikfélagi Akureyrar sem miðasölu- og markaðsfulltrúi. Hún hefur auk þess undanfarin ár sinnt nefndar- og stjórnarstörfum fyrir Akureyrarbæ.

Menningarfélagið býður Silju Dögg velkomna til starfa.

Til baka