Liststjóðurinn VERÐANDI auglýsir eftir umsóknum
Listsjóðurinn VERÐANDI auglýsir eftir umsóknum. Í tilefni 10 ára afmælis Menningarhússins Hofs stendur sjóðurinn fyrir Listahátíð VERÐANDI sem samanstendur af viðburðum umsækjenda. Listahátíðin fer fram í Menningarhúsinu Hofi helgina 13. - 14. febrúar 2021.
Sjóðurinn veitir styrki til kostnaðar vegna afnota af salarkynnum, tæknibúnaði og tækniþjónustu. Menningarhúsið Hof sér um kynningu á hátíðinni í heild.
Helstu markmið sjóðsins eru að auðvelda ungu listafólki og þeim sem standa utan stofnanna að nýta sér þá fyrirmyndar aðstöðu sem Hof hefur uppá að bjóða og stuðla að fjölbreytileika í listviðburðum.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 10. júní næstkomandi. Nánar um hátíðina, sjóðinn ásamt umsóknareyðublaði er á mak.is. Kristín Sóley Björnsdóttir, viðburðastjóri Hofs, kristinsoley@mak.is veitir frekari upplýsingar sé þess óskað.
VERÐANDI er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, Menningarfélagsins Hofs og Menningafélags Akureyrar.