Opið hús í Hofi
Í tilefni að nýútkomnum kynningarbæklingi mun Menningarfélag Akureyrar bjóða alla velkomna í Opið hús í Hofi sunnudaginn 2. september kl. 14 til 16.
Verkefni Leikfélags Akureyrar, Hofs og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands eru fjölbreytt og spennandi og verður ýmsu gert skil á Opna húsinu. Til að mynda verður atriði úr söngleiknum Kabarett, eftir Joe Masteroff, en sýningar á Kabarett hefjast í Samkomuhúsinu í október, hinn ungi einleikari, Alexander Edelstein, leikur á flygilinn og söngatriði flutt úr Krúnk, krúnk og dirrindí, litríkri og fjörugri fjölskylduskemmtun sem öll svið Menningarfélagsins koma að.
„Starfsárið endurspeglar mikla breidd hjá menningarfélaginu. Við erum stórhuga, á sama tíma og við leggjum áherslu á efni handa börnum og búum til ný íslensk barnaverk hugum við að menningararfinum, endurvekjum gamalt efni og bjóðum upp á gimsteina í klassískri tónlist,“ segir Þuríður Helga Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarfélagsins.
Dagskrárbæklingur MAk var dreift inn á öll heimili á Akureyri á miðvikudaginn. Til að kynnast starfsárinu enn betur eru allir velkomnir í Hof á sunnudaginn. Auk dagskrárkynningar verður boðið upp á vöfflur og kaffi, ljúfa tónlist, leiðsögn um Hof, listasmiðju fyrir börnin og margt fleira.