Opnar prufur fyrir leikárið 2025-2026
11.04.2025
Það er spennandi leikár framundan hjá okkur í Leikfélagi Akureyrar.
Við leitum að háskólamenntuðum leikurum 25-45 ára í ýmis hlutverk.
Hæfnikröfur eru:
- Háskólamenntun í leiklist.
- Reynsla eða menntun í söng.
Prufurnar verða haldnar í Samkomuhúsinu á Akureyri fimmtudaginn 1. maí og á Litla sviði Borgarleikhússins í Reykjavík 3. maí.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað má finna hér
Ef þú ert leikari sem er tilbúinn að taka þátt í æfinga- og sýningarferli á tímabilinu frá september 2025 til vordaga 2026, þá endilega skráðu þig!