Fara í efni

Samningur um rekstur upplýsingamiðstöðvar í Hofi endurnýjaður

Katrín Káradóttir, eigandi Kistu – Eva Hrund Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyra…
Katrín Káradóttir, eigandi Kistu – Eva Hrund Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar – Pétur Ólafsson, Hafnastjóri – Ásthildur Sturlurdóttir – Bæjarstjóri Akureyrarbæjar

Í gærdag var samkomulag um rekstur Upplýsingamiðstöðvarinnar í Hofi endurnýjað til þriggja ára. Að rekstrinum standa Akureyrarbær, Hafnasamlag Norðurlands, Menningafélag Akureyrar og verslunin Kista í Hofi.

Tilgangur samningsins er að bjóða ferðamönnum upp á upplýsingaþjónustu í menningarhúsinu Hofi á tímabilinu 1. apríl – 30. september ár hvert.

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri segir það fagnaðarefni að búið sé að undirrita þriggja ára samning um starfsemi upplýsingamiðstöðvar í Hofi. “Það skiptir máli að geta veitt ferðafólki góðar upplýsingar um það mikla framboð á þjónustu og viðburðum sem stendur til boða hér á Akureyri og það gerum við með því að reka í sameiningu upplýsingamiðstöð” segir Ásthildur.

Hafnasamlag Norðurlands og Akureyrarbær leggja fjárframlög til rekstursins. Menningarfélag Akureyrar mun, sem áður, sjá um að hýsa starfsemina innan veggja Hofs ásamt því að sjá um starfsmannamál. Verslunin Kista, sem er með rekstur við hlið upplýsingamiðstöðvarinnar, leggur til aðstoð við upplýsingagjöf þegar þess er þörf.

„Það hefur verið mikil aðsókn í þessa þjónustu af ferðamönnum síðastliðin ár og við sjáum skýrt að þörfin er til staðar. Við höfum heyrt frá ferðaþjónustuaðilum að þjónustan reynist afar vel og það er okkar upplifun að almenn ánægja sé hjá ferðamönnum um þá þjónustu sem er veitt“, segir Eva Hrund Einarsdóttir framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar.

Pétur Ólafsson hafnarstjóri segir „það er sérstakt markmið Hafnasamlagsins að farþegar skemmtiferðaskipa eigi kost á upplýsingagjöf sem veitt er auglit til auglits um Akureyri og nágrenni eftir að í land er komið og er ég er afar ánægður með fyrirkomulagið.“

Upplýsingamiðstöðin opnaði þann 1. apríl nýliðinn.

Til baka