Samstarf við Norðurorku
08.01.2016
Í dag var undirritaður samningur um samstarf Norðurorku og Menningarfélags Akureyrar.
Samkvæmt þessum samningi mun Norðurorka styðja við starf Menningarfélagsins næstu þrjú árin. Áhersla er lögð á samfélagsleg verkefni með það að leiðarljósi að fleiri börnum og ungmennum gefist kostur á að nýta sér þá menningu og listsköpun sem á sér stað innan veggja Menningarfélagsins.
Það gleður okkur að tilkynna um leið að 5 og 6 ára börnum, sem búsett eru á Akureyri, verður boðið á tónleika Gretu Salóme og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands þann 17. janúar næstkomandi.