Samstarfstónleikar SN og TA í Langholtskirkju
15.05.2011
Á þessum tónleikum koma til liðs við SN og TA hljómsveitir frá tveim tónlistarskólum í Danmörku, nánar tiltekið
Hvidövre og Albertslund. Á efnisskránni verður Sinfónía nr. 2 eftir J. Brahms, Svíta fyrir fiðlu og hljómsveit eftir Christian Sinding og
Finlandia eftir Jean Sibelius.
Einleikari á fiðlu er norskur fiðluleikari Bård Monsen. Einnig mun Karlakór Akureyrar Geysir syngja með hljómsveitinni.
Stjórnandi á tónleikunum er Guðmundur Óli Gunnarsson.
Sérstakt forsölutilboð til 12. maí nk. miðaverð 2.000 kr. Eftir það er miðaverðið 2.500 kr.
Miðaverð fyrir 16 ára og yngri 1.000 kr einungis bókanlegt í miðasölu Hofs og við innganginn á tónleikunum í Langholtskirkju.