Sjómannadagurinn
*Kl. 8 Fánar dregnir að húni.
*Kl. 11 Sjómannamessur í Akureyrarkirkju og Glerárkirkju.
*Kl. 12.15 Við Glerárkirkju verður lagður blómsveigur að minnisvarða um týnda og drukknaða sjómenn.
*Kl. 13 Húni II leggur úr höfn frá Torfunefsbryggju og siglir að Sandgerðisbót. Þar safnast
smábátarnir saman og sigla hópsiglingu inn á Torfunefsbryggju. Eldri sögulegir trébátar sigla einnig með Húna, framhjá
Torfunefsbryggju og inn að Hofi.
Allir bátarnir verða komnir á Pollinn klukkan 14.
*Kl. 13.45 Menningarhúsið Hof - Hljóðfæraleikarar úr Lúðrasveit Akureyrar spila á sviði meðan fólk safnast saman og smábátar sigla inn Pollinn.
*Kl. 14-16 Menningarhús Hof - Dagskrá hefst á sviði og verður kynnir Pétur
Guðjónsson. Flutt verður ræða sjómannsdóttur og er hún í höndum Ragnhildar Benediktsdóttur frá
Jötunfelli. Yfirskrift ræðunnar “Afi og pabbi voru tryllukarar í Bótinni".
Ljóðið Brimlending eftir Davíð Stefánsson fráFagraskógi verður flutt.
Strandmenningarfélag Akureyrar veitir viðurkenningu og fulltrúi frá Akureyrarbæ heldur
ávarp. Félagar úr Karlakór Akureyrar-Geysi flytja sívinsæl sjómannalög undir
stjórn Snorra Guðvarðarsonar.
*Kl. 15 Kappróður hefst á Pollinum og endar við Hof.
*Kl. 16 Krakkar og siglingar, siglingamenn Nökkva sýna siglingar og bátana.
*Kl. 16.15 og 17.15 Sigling um Pollinn með Húna II. Tvær ferðir. Kaffisala um
borð.
*Kl. 16.30 Kynning á hraðbátum og sæþotum.
*Kl. 17 Arngrímur Jóhannsson flugkappi lendir sjóvélinni sinni á Pollinum.