Söngfuglar
15.09.2011
-
15.09.2011
Jana María og Ívar Helgason ásamt hljómsveit taka höndum saman og fara yfir þekkt pör íslenskrar dægurlagasögu á tónleikum í allan vetur í Hofi, Akureyri og Salnum Kópavogi.
Það er við hæfi að hefja tónleikaröðina með fögrum tónum Helenu Eyjólfs og Óðins Valdimarssonar en þau hafa alltaf verið tengd Akureyri sterkum böndum. Saman gerðu þau lög eins og Ég skemmti mér, Segðu ekki nei og Það sem ekki má. Fullkomin uppskrift að ljúfu haustkvöldi.
Upplifðu hlýjar stundir með söngfuglunum í vetur - hlökkum til að sjá þig!