Söngkeppni félagsmiðstöðva Akureyrar
09.12.2010
Þetta er fyrsti hluti söngkeppni Samfés og fara 5 atriði áfram í næstu keppni sem haldin verður á Dalvík 28. janúar
næstkomandi. Lokahluti söngkeppni Samfés fer svo fram í Laugardalshöll 5. mars 2011.
Allur ágóði af viðburðinum rennur til styrktar Mæðrastyrksnefndar og Fjölskylduhjálpar en unglingarnir völdu sjálfir þessi málefni. Hægt er að kaupa miða í öllum félagsmiðstöðvum Akureyrar, einnig er hægt að kaupa miða í Hofi eða á heimasíðu Hofs.
Miðaverð: 1.000 kr.