Stafræn leikskrá Kabaretts
26.10.2018
Eins og áður hefur komið fram hefur Menningarfélag Akureyrar ákveðið að fækka prentuðum eintökum tónleika- og sýningaskráa með umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Héðan í frá verða skrárnar á stafrænu formi og aðgengilegar gestum í síma. Á meðan viðskiptavinir eru að aðlagast breytingunni verður hægt að kaupa prentuð eintök í miðasölunni. Leikskrá Kabaretts kostar 500 krónur.