Fara í efni

Stórtónleikar á skírdag

Sæunn Þorsteinsdóttir sem hefur getið sér gott orð víða um heim með sellóleik sínum flytur Sellókonsertí e-moll eftir Edward Elgar. Á efnisskrá verður einnig Sinfónía nr. 5 eftir Shostakovich. Eins og nafnið á tónleikunum bendir til mega áheyrendur búast við kraftmiklum og glæsilegum konsert.

Sæunn Þorsteinsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1984.  Hún hóf tónlistarnám fjögurra ára við forskóla Tónlistarskólans á Akureyri. Árið 2006 útskrifaðist hún með Bachelor gráðu frá Cleveland Institute of Music með hæstu einkunn og árið 2008 lauk hún meistaranámi sínu við Juilliard tónlistarháskólann í New York.

Sæunn býr nú í New York og hefur mikið komið fram í Bandaríkjunum, víða í Evrópu og hér heima sem flytjandi kammertónlistar, meðal annars með Itzhak Perlman, Kim Kashkashian, Mitsuko Uchida, Cavani kvartetinum,  sem og meðlimum the Guarneri Quartet. Undanfarið hefur Sæunn verð meðlimur Ensemble ACJW sem er samvinnuverkefni Carnegie Hall, Juilliard tónlistarháskólans og Weill Music stofnunarinnar með stuðningi menntasviðs New York borgar. Hópurinn kemur reglulega fram í Carnegie Hall og í skólum borgarinnar.

Sæunn hefur einnig komið fram sem einleikari með m.a. Des Moines Symphony, Great Lakes Chamber Orchestra Silesian Philharmonic í Póllandi, Colombian Youth Philharmonic í Kólumbíu og Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Sæunn hefur lagt áherslu á flutning nýrrar tónlistar og hefur frumflutt fjölda verka, meðal annars verk sérstaklega samin fyrir hana af Daníel Bjarnasyni og Nicholas Csicsko.

Sæunn hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga, svo sem Janigro Family and Romanini Foundation verðlaunin við Antonio Janigro International Cello Competition í Sagreb og Zara Nelsova verðlaunin við Naumburg Competition í New York árið 2008.

Til baka