Stúfur stígur á svið
Hin bráðhressandi og hjartastyrkjandi jólasýning Leikfélags Akureyrar Stúfur verður í Samkomuhúsinu helgina 9. – 11. desember. Sýningin er fyrir rollinga, unglinga, ömmur og afa og allt þar á milli. Samt mest fyrir snillinga. Hér birtist leikarinn, tenórinn, trúðurinn, heimsmaðurinn og eineltisbarnið Stúfur, geislandi af hæfileikum, ljúfur,hrjúfur, spriklandi og sprellfjörugur því hann hefur verið duglegur að læra og æfa sig í von um frekari frægð og frama. Hann hefur nú kynnt sér leikhúsið; lært að syngja, dansa og segja sögur í mismunandi leikstílum – og síðast en ekki síst, lært að hlusta á leikstjórann. Stúfur segir áhorfendum sannar sögur af sjálfum sér og samferðarfólki sínu, í bland við frumsamin krassandi ævintýri sem ættu að gleðja jafnt börn, unglinga, foreldra, afa og ömmur – og jafnvel hina geðvondu og sípirruðu móður listamannsins, sjálfa Grýlu. Sjálfur segir Stúfur
„Ég er jólasveinn með stóra drauma, svo stóra að þeir komast ekki almennilega fyrir inni í mér af því ég er frekar lítill.“
Í þessari sýningu sýnir hann og sannar að hann er enginn venjulegur jólasveinn!
Norðurorka er helsti bakhjarl sýningarinnar og gerir okkur kleift að sviðsetja þessa bráðhressandi sýningu. Stúfur er einn af mörgum viðburðum í metnaðarfullri dagskrá Menningarfélags Akureyrar fyrir ungt fólk og börn.
Sýningin er um klukkutíma löng og ætluð börnum 4+
Það er uppselt á frumsýninguna og örfá sæti laus á sýningarnar 10. og 11. des kl 13. Tryggðu þér miða hér .