Sýningunni Sjónarhorn lýkur
06.10.2014
Ljósmyndasýningin Sjónarhorn var opnuð í Hofi í vor, sýningin er í samstarfi við Minjasafn Akureyrar og hafa gestir hennar verið fjölmargir. Myndirnar fanga skemmtilega stemningu á Akureyri í áranna rás.
Nú fer að líða að lokum sýningarinnar og mun ný sýning frá ÁLKU, Áhugaljósmyndaklúbbi Akureyrar, opna laugardaginn 18. október. Yfirskrift hennar er Náttúra Norðurlandi og munu félagsmenn í ÁLKU sýna myndir sem fanga Náttúru Norðurlands.