Fara í efni

Talking Timber sýnir í Rýminu

Leikhópurinn Talking Timber sýnir verkið "Answering Answering – Machine” í Rýminu laugardaginn 10. maí kl. 17:00. Hópurinn samanstendur af  Josephine Kylén Collins (SÞ), Mikkel Rasmussen Hofplass (NO), Piet Gitz-Johansen (DK) og Hanna Reidmar (SÞ). Tónlistarmennirnir  Jonny Collins Wartel og Georgia Wartel Collins sýna með þeim í þessu verki. Sýningin er flutt á ensku. 

Bakgrunnur hópsins liggur í mismunandi listgreinum: innsetningum, sjónrænu leikhúsi, ljósmyndun og dansi. Að loknu námi í The Norwegian Theatre Academy í Fredrikstad í Noregi ákváðu þau að setja saman krafta sína og vinna að sérhæfðu tungumáli innan sviðslistanna. Talking Timber leitar stöðugt eftir nýjum leiðum í vinnu sinni bæði í innihaldi og byggingu. Þessa dagana eru þau að vinna að stefnumóti milli líkamlegrar tjáningar og rýmis þannig að úr verður  sjónrænt tungumál þar sem hið kómíska og tragíska helst í hendur. 

Talking Timber dvelur í vinnustofu hjá Leikfélagi Akureyrar næstu fjórar vikurnar, sýning þeirra á sínu fyrsta verki “Answering Answering – Machine” er upphafið af dvölinni en í Rýminu munu þau einnig vinna að nýju verki sem frumsýnt verður í Black Box leikhúsinu í Osló vorið 2015. 

Miða á sýninguna er hægt að nálgast hjá Leikfélagi Akureyrar, sími 4 600 200 og á leikfelag.is

Miðaverð er krónur 2.500. Sýningin er 75 mínútur í flutningi, ekkert hlé.

Til baka