Syngdu með - rödd þjóðar!
Lagið er stórt og mikið, hefur hlotið nafnið Ísland og eru margir sem koma aðflutningi þess, þ.á.m Fjallabræður, hljómsveit
Fjallabræðra, Unnur Birna Björnsdóttir og lúðrasveit Vestmannaeyja. Halldór Gunnar samdi lagið en textann samdi Jökull Jörgensen. Einsöng
í laginu syngur Unnur Birna Björnsdóttir sem einnig kom að því að semja lagið.
En hvernig ætlar hann að fara að fanga „Rödd þjóðarinnar“?„Það er einfalt, ég ætla að keyra hringinn í kringum landið, stoppa á fyrirfram ákveðnum stöðum sem ég verð búinn aðhafa samband við og safna fólki saman til að láta það syngja. Og að ferðalaginu loknu verður öllum upptökum blandað saman til að mynda einn risastóran kór - rödd þjóðarinnar.“
„Á hverjum stað sem ég heimsæki verður opið hús þar sem upptökur fara fram. Kafli lagsins er einfaldur og fljótlærður og mun það ekki taka langan tíma að kenna sönglínuna og taka hana upp,“ segir Halldór Gunnar.
Samstarfsaðilar: Pétur Kristján og Helgi Guðmundssynir hjá Trailerparkstudios munu fylgja verkefninu eftir við hvert fótmál og búa til sjónrænt listaverk við lagið þar sem land og þjóð fara með aðalhlutverk.
Markmiðið með þessu öllu saman er að reyna að sameina þjóðina í söng. Það er alveg klikkað ef að heil þjóð tekur sig saman í söng, það hlýtur bara að vera einsdæmi. Að verkefninu loknu verður lagið og myndbandið gert aðgengilegt öllum að kostnaðarlausu á vefsíðu verkefnisins sem verið er að vinna að.
Nú er komið að því að Halldór mæti á Norðurlandið en viðkomustaður hans á Akureyri verður aðalsalur Hofs, Hamraborg, næstkomandi laugardag kl. 13. Við hvetjum sem flesta til þess að mæta og hugsanlega setja met í fjölda söngvara á sviðinu í Hofi!
Allir geta tekið þátt í gleðinni. Hvað ætli margir söngvarar mæti í Hof?
Allt um verkefnið má finna á heimasíðunni www.thjodlag.is og á facebook.
Eins má sjá skemmtilega umfjöllun Kastljóssins hér.