Þorgerðartónleikar í Hofi á miðvikudagskvöldið
13.03.2023
Tónleikarnir Þorgerðartónleikar verða haldnir í Menningarhúsinu Hofi á miðvikudagskvöldið. Tónleikarnir eru til styrktar minningarsjóðs um Þorgerði S. Eiríksdóttur tónlistarkonu. Á tónleikunum koma fram framhaldsstigsnemendur Tónlistarskólans á Akureyri og flytja fjölbreytta og skemmtilega efnisskrá.
Þorgerður lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum á Akureyri og var nýkomin til London í framhaldsnám er hún lést af slysförum í febrúar 1972. Ári síðar stofnuðu aðstandendur Þorgerðar ásamt Tónlistarskólanum og Tónlistarfélagi Akureyrar minningarsjóð, til að styrkja efnilega nemendur frá Tónlistarskólanum á Akureyri til framhaldsnáms. Eru tónleikarnir helsti vettvangur til að styrkja sjóðinn, auk þess sem sjóðurinn hefur tekjur af sölu minningarkorta.
Aðgangur er ókeypis, en tekið er á móti frjálsum framlögum.