Fara í efni

Töfratónar Griegs í Hofi

Hljómsveit Akureyrar heldur tónleikana Í fjallasal – töfratónar Griegs í Hamraborg í Hofi annað kvöld, laugardagskvöldið 11. maí. 

Dalvíkingurinn ungi Styrmir Þeyr Traustason þreytir frumraun sína með sinfóníuhljómsveit í hinum dásamlega elskaða píanókonsert Griegs. Karlakórar á svæðinu ásamt hetjubassanum Reyni Gunnarssyni flytja víkingasöng Ólafs konungs „Landssýn“ og svo upplifum við morgunroða í Afríku, höll Dofra konungs o.fl. úr Pétri Gaut. Tónlist sem allir elska.

Hljómsveit Akureyrar, Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, Karlakór Akureyrar-Geysir, Karlakór Eyjafjarðar í banastuði!

Michael Jón Clarke og Óliver Kentish stjórna. Miðasala hér!

Viðburðurinn nýtur styrkja frá Verðandi Listsjóði og Menningarsjóði Akureyrarbæjar. 

Til baka