Tónleikum Víkings Ólafssonar frestað vegna hertra fjöldatakmarkana
Tónleikum einleikarans Víkings Heiðars Ólafssonar, sem fara áttu fram í Menningarhúsinu Hofi 25. október, verður frestað vegna hertra fjöldatakmarkana. Ný dagsetning tónleikanna er laugardagurinn 13. mars 2021. Miðaeigendur halda sínum sætum en þeim sem vilja fá endurgreitt er bent á að hafa samband við miðasöluna í Hofi.
Víkingur, sem er á meðal eftirsóttustu einleikara sinnar kynslóðar, tók um helgina á móti þýsku tónlistarverðlaununum OPUS KLASSIK í Berlín fyrir píanópötu ársins, Debussy Rameau, og lék um leið í sjónvarpinu fyrir tæplega tvær milljónir áhorfenda.
Á tónleikunum mun hann flytja efnisskrá nýju einleiksplötu sinnar sem kom út hjá Deutsche Grammophon fyrr á þessu ári. Á fyrri hluta tónleikanna vefur hann saman hljómborðsverkum Claude Debussy og Jean-Philippe Rameau og flytur að lokum eitt helsta meistaraverk rússneskra tónbókmennta, Myndir á sýningu eftir Modest Músorgskíj, í mikilfenglegri umritun eftir Vladimir Horowitz. Tónleikarnir eru samstarf Menningarhússins Hofs og Listahátíðar í Reykjavík.