Tónlistarflytjendur ársins í Hofi um helgina
10.03.2011
Ágúst og Gerrit flytja Schubert í Hofi annað kvöld en þá verður Svanasöngur fluttur í þriðja sinn, með fulltingi Láru Stefánsdóttur dansara.
Sýningin verður í Hamraborg, aðalsal Hofs og hefst sýningin kl. 20.
Gagnrýnendur fóru fögrum orðum um sýninguna í ýmsum miðlum;
**** – R.Ö.P., Mbl.
„Skemmtileg, frumleg og athyglisverð sýning“ – J.S., Fbl.
„Virkilega ánægjuleg kvöldstund“ – H.J., Víðsjá
Miðaverð: 2.500 kr.
Miðasala í Hofi s. 450-1000 og hér.