Um 1800 manns heimsóttu Hof síðastliðinn sunnudag
Sunnudagurinn 24. nóvember var viðburðaríkur í Hofi en samkvæmt talningu voru 1740 manns sem gengu inn um aðaldyr hússins. Sé rennsli um aðrar dyr teknar með inn í talninguna má áætla að rúmlega 1800 einstaklingar hafi heimsótt Hof þennan fallega vetrardag.
Jólailmur er jólamarkaður sem haldinn er ár hvert í Hofi og var þennan sunnudag boðið upp á fjölbreyttan varning tengdan jólunum beint og óbeint. Mói Bistro bauð upp á jólaglögg og gúmmelaði og jólatónlist ómaði um húsið. Var þessi undanfari aðventunnar kærkominn viðbót við jólasnjóinn sem nú umlykur Akureyri.
Stórviðburðurinn Boléro var sama dag í Hofi og var nær húsfyllir í Hamraborg þegar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands flutti fjögur verk og frumflutti þar af tvö íslensk verk, annað eftir Snorra Sigfús Birgisson og hitt eftir Daníel Bjarnason sem einnig stýrði hljómsveitinni. Greta Salóme sem nýverið eignaðist sitt annað barn flutti einnig einn flóknasta fiðlukonsert tónlistarsögunnar með aðstoð Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Standandi lófaklapp bergmálaði um salinn að loknum tónleikum.
Á komandi helgi slær ekki slöku við í Hofi. Fimmtudaginn 28. nóv mætir Hallgrímur Helgason hlaðinn Sextíu kílóum af sólskini, kjaftshöggum og sunnudögum. Hallgrímur er kunnur sögumaður og hefur haldið gríðarlega vinsæl námskeið þar sem hann opnar bækurnar um fólkið í sjávarþorpinu Segulfirði upp á gátt fyrir lesendum sínum. Á sviðinu rekur hann frásögnina í gegnum skáldsögurnar af alkunnri list, les upp úr bókunum, lyftir hulunni af vinnuferlinu, baksögunum og innblæstrinum og gæðir persónur sínar lífi sem aldrei fyrr.
Steps dancecenter er með 2 uppseldar jólasýningar á laugardeginum og tónlistarkonan GDRN flytur nokkur jólaleg jólalög við undirspil Magnúsar Jóhanns á laugardagskvöldinu.
Á sunnudeginum er það svo jólatónleikarnir Jólaljós og lopasokkar sem verða í Hamraborg en þar eru það Óskar Pétursson, Króli, Guðrún Gunnarsdóttir, Jónína Björt ásamt fleirum sem ætla að koma áhorfendum í kærkomið jólaskap á fyrsta degi aðventunnar.