Ungt tónlistarfólk á Norðurlandi flytur sumartóna
21.08.2018
Tónleikarnir Sumarkvöld fara fram í Hömrum fimmtudagskvöldið næstkomandi. Þar mun ungt og efnilegt tónlistarfólk á Norðurlandi flytja fallega sumartóna. Tónleikarnir eru hluti af viðburðaröð Listasumars og Menningarfélags Akureyrar og eru þeir síðustu í röðinni.
Kaffihúsastemning verður í Hömrum þar sem tónleikagestir sitja við borð og geta notið veitinga af 1862 Nordic Bistro.
Flytjendur:
Jónína Björt Gunnarsdóttir - Söngur
Silja Garðarsdóttir - Söngur
Katrín Mist Haraldsdóttir - Söngur
Gunnar Björn Jónsson - Söngur
Daníel Andri - Rafmagnsgítar
Guðjón Jónsson - Píanó
Logi Helgason - Trommur
Heimir Kristmundsson - Bassi
Logi Helgason - Trommur
Heimir Kristmundsson - Bassi