Fara í efni

Ungur leikhópur í Samkomuhúsinu

Leikhópurinn Næsta leikrit, sem skipaður er ungu fólki úr Eyjafirði,  frumsýnir leikrit sitt Listin að Lifa í leikstjórn Sindra Snæs Konráðssonar föstudaginn 30. september kl. 20 í Samkomuhúsinu. Listin að lifa er spennandi ástarsaga með söngvum sem fjallar um strákinn Frey sem er að koma út úr skápnum og líf hans. Við erum stolt af því að fá tækifæri til að fóstra og rækta hæfileika ungs listafólks í frumsköpun í sviðslistum. Leikhúsið er gróðurhús fyrir hugmyndir þar sem draumar geta ræst. Raddir unga fólksins eru mikilvægar og því nauðsynlegt að skapa tækfæri fyrir ungt fólk að eiga stefnumót við áhorfendur.  

Leikritið Listin að lifa er spennandi ástarsaga með söngvum sem fjallar um strákinn Frey sem 
er að koma út úr skápnum og líf hans. Vinkonur Freys eru alveg harðákveðnar í því að finna 
einhvern æðislegan draumaprins fyrir hann. Líf þeirra tekur miklum breytingum þegar bankinn
sendir móður Freys tilkynningu um útburð ef þau standa ekki í skilum.
Nú verða vinirnir að finna leið til að safna peningum á mjög stuttum tíma.
 
Leikhópurinn Næsta leikrit var stofnaður sumarið 2014 og var þeirra fyrsta leiksýning ,,Sértu Velkominn Heim”, sýnd um borð í Húna ll. Leikritið var byggt á frægum 
sjómannalögum og sögum. Hver meðlimur leikhópsins var (og er) reyndur meðlimur LLA 
og small hópurinn saman við fyrstu kynni. Eftir þetta sýningarferli ákváðu krakkarnir að 
halda áfram samstarfi og bættust þá tveir krakkar við hópinn. Þau skrifuðu verk sem þau 
sýndu í janúar 2015 sem kallaðist ,,Ævintýri í Inniskógi” en það var samblanda af sígildum ævintýrum sem allir þekkja. Leikhópurinn tók sér nokkra mánaða pásu en kom 
sér aftur að verki haustið 2015 og meðlimir hans sömdu nýtt leikrit: ,Listin að Lifa”, 
í þessu nýja verkefni hefur nú  leikstjórinn Sindri Snær Konráðsson bæst í hópinn.

 

Tryggið ykkur miða á mak.is, í miðasölunni í Hofi milli kl 12 0g 18 alla virka daga eða í síma 450 1000.

 

 

 

 

Til baka