Fara í efni

UPPTAKTURINN – tónleikar og þér er boðið!

Þátttakendur Upptaktsins 2025 ásamt Gretu Salóme, Kristínu Sóley og Kristjánsi Edelstein
Þátttakendur Upptaktsins 2025 ásamt Gretu Salóme, Kristínu Sóley og Kristjánsi Edelstein

Flutt verða átta glæný lög eftir ungmenni á aldrinum 10-16 ára núna á sunnudaginn þann 27. apríl kl. 17 hér í Hofi. Greta Salóme og Kristján Edelstein útsettu lög ungmennanna fyrir hljómsveit og það eru atvinnuhljóðfæraleikarar sem flytja verk þeirra á stóra sviðinu í Hamraborg.

Ungmennin sjö hafa unnið með listafólkinu að útsetningu laga sinna og nú er uppskeruhátíð! Þar sem þau sitja út í sal og njóta afrakstursins ásamt gestum.

Verkin átta voru valin af dómnefnd úr fjölda umsókna, sem bárust í Upptaktinn í ár.

Ungtónskáld Upptaktsins 2025 eru:

 

Alex Parraguez Solar – Sumargleði vetursins

14 ára úr Naustaskóla

 

Hákon Geir Snorrason – Lifðu lífinu lifandi

11 ára úr Lundarskóla

 

Heimir Bjarni Steinþórsson – Racket & To Thrive

14 ára úr Lundarskóla

 

Hjördís Emma Arnarsdóttir – Ljósadans

12 ára úr Þelamerkurskóla

 

Hjörtur Logi Aronsson – Það sem er best

12 ára úr Brekkuskóla

 

Ísólfur Raymond Matharel – Allegretto

11 ára úr Brekkuskóla

 

Lára Rún Keel Kristjánsdóttir - Neðansjávarsól

15 ára úr Þelamerkurskóla

 

Hljómsveitina skipa:

Emil Þorri Emilsson – slagverk og trommur

Greta Salóme – fiðla og söngur

Kristján Edelstein – gítar

Stefán Ingólfsson – bassi

Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir - selló

Þórður Sigurðarson – hljómborð og harmonika

Ágúst Brynjarsson – söngur lagsins Lifðu lífinu lifandi.

 

Útsetning verkanna fyrir hljómsveit: Kristján Edelstein og Greta Salóme.

Tónlistarstjóri: Greta Salóme.

 

Enginn aðganseyrir og allir eru hjartanlega velkomnir á tónleikana!

 

Upptakturinn í Hofi er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Upptaktsins í Hörpu, styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands eystra.

Upptakturinn er þátttakandi í Barnamenningarhátiðinni á Akureyri.

Til baka