Valgeir Guðjónsson og gestir - forsala að hefjast
- Forsala hefst fimmtudaginn 12. apríl kl. 13:00
- Sérstakt forsölutilboð 12.-19. apríl: 1.000 kr. afsláttur af almennu miðaverði
- Bókanlegt á vefnum og í miðasölu Hofs s. 450 1000
Valgeir Guðjónsson er án efa einhver afkastamesti laga- og textahöfundur í sögu dægurtónlistar á Íslandi. Eftir hann liggja
ófáar perlurnar, sem eru flestum landsmönnum kunnar og hjartfólgnar og hafa fylgt þeim í gegnum tíðina.
Valgeir hefur starfað með kunnum sveitum eins og Stuðmönnum, Spilverki þjóðanna o.fl. ásamt því að eiga farsælan sólóferil. Öll þekktustu lög Valgeirs munu hljóma í Hofi þetta kvöld ásamt óborganlegum frásögnum úr lífi þessa ástsæla tónlistarmanns með fulltingi hljómsveitar og vina bæði úr Stuðmönnum og Spilverkinu.
Sérstakir gestir verða:
Diddú - Ragnhildur Gísladóttir - Jakob Frímann Magnússon
Hljómsveitina skipa valinkunnir tónlistar- og gleðimenn:Ásgeir Óskarsson trommur - Tómas Tómasson bassi - Jón Ólafsson hljómborð og söngur - Stefán Már Magnússon gítarar og raddir - Eyjólfur Kristjánsson gítar söngur og raddir
Nánari upplýsingar í miðasölu Hofs s. 450 1000 og hér.