Velkomin á opinn samlestur á verðlaunasöngleiknum Vorið vaknar í Samkomuhúsinu
Leikfélag Akureyrar frumsýnir söngleikinn Vorið vaknar þann 31. janúar í Samkomuhúsinu og af því tilefni verður opinn samlestur fimmtudaginn 12. desember klukkan 15-17 en þá munu leikarar lesa og syngja lögin úr verkinu á sviðinu. Gestum og gangandi er velkomið að kíkja við hvenær sem er á þeim tíma.
Aðgangur ókeypis. Engin skráning. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Komdu og eigðu skemmtilega stund í Samkomuhúsinu. Barinn verður opinn!
Nánar um Vorið vaknar:
Rokksöngleikurinn Vorið vaknar hlaut 8 Tony verðlaun þegar hann var frumsýndur á Broadway árið 2006. Söngleikurinn hefur síðan farið sigurför um heiminn en verður nú í fyrsta skipti fluttur af atvinnuleikhúsi á Íslandi. Í aðalhlutverkum eru Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Júlí Heiðar Halldórsson, Rúnar Kristinn Rúnarsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir og Þorsteinn Bachmann. Leikstjóri er Marta Nordal, tónlistarstjóri Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og danshöfundur er hinn margverðlaunaði Lee Proud frá West End.
Ekki missa af þessu frábæra tækifæri til að upplifa töfra leikhússins.