Vesturport kemur með Húsmóðurina í Hof
Hér tekst Vesturport á við gamanleikjaformið þar sem hurðir opnast og lokast á hárréttu augnabliki, persónur birtast á
óþægilegu andartaki eða yfirgefa sviðið rétt áður en allt verður óbærilega vandræðalegt. Leikarar skipta um hlutverk
á ótrúlega stuttum tíma, einn ryður út úr sér orðaleikjum á meðan annar dettur á bananahýði. Öll trixin
í bókinni og auðvitað fullt af óvæntum uppákomum að hætti Vesturports. Litrík og hættuleg sýning þar sem leikið er
út á ystu nöf.
„Við erum virkilega spennt fyrir því að koma norður og það verður gaman að nýta möguleikana í Hofi þar sem að
sviðið er stórt og við ætlum að skapa skemmtilega nálægð við áhorfendur eins og við gerðum í Borgarleikhúsinu.
Það var uppselt á allar sýningar okkar í Borgarleikhúsinu þó að það hafi verið sýnt allt að sex sinnum í viku.
Gagnrýnendur og áhorfendur elskuðu Húsmóðirina sem á svo sannarlega skilið að skreppa í orlof til Akureyrar! segir Rakel
Garðarsdóttir framkvæmdastjóri Vesturports.
Húsmóðirin verður sett upp í Hamraborg, stóra sal Hofs, en áhorfendur munu sitja á sviðinu.
„Við erum stolt af því að fá Vesturport sem er með virtustu leiklistarhópum í heimi í heimsókn til okkar“ segir
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir framkvæmdastjóri Menningarhússins Hofs.
Vesturportshópinn þarf vart að kynna en hann á 10 ára afmæli í ár og í vor hlaut hann Evrópsuku leiklistarverðlaunin sem eru ein virtustu leiklistarverðlaun í heiminum. Hópurinn hefur á þessum tíu árum verið afkastamikill og sett upp margar eftirtektarverðar sýningar og framleitt nokkrar kvikmyndir. Þær sýningar sem mesta athygli hafa hlotið einkennast af sterkum myndum, krafti og gleði, grípandi tónlist og ólgandi tilfinningum. Nú um helgina veitti Vesturport Evrópsku leiklistarverðlaununum viðtöku við hátíðlega athöfn í Alexandrinsky-leikhúsinu í Pétursborg. Þetta er án vafa mesta viðurkenning sem íslenskt leikhús og leikhúslistamenn hafa hlotið fyrr og síðar. Sýningarnar Hamskiptin og Faust voru sýndar ytra í tenglsum við hátíðina fyrir fullu húsi fjölmiðla – og leikhúsfólks og var vel fagnað.
Höfundar og leikarar verksins eru þau Björn Hlynur Haraldsson, Gísli Örn Garðarsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Víkingur Kristjánsson og Jóhannes Níels Sigurðsson. Leikmynd og búninga hannar Ilmur Stefánsdóttir og lýsingu annast Þórður Orri Pétursson. Pálmi Sigurhjartarson semur og flytur tónlist og Ólaf Örn Thoroddssen er hljóðmaður sýningarinnar.
Húsmóðirin er samstarfsverkefni Vesturports og Borgarleikhússins.
flytja leikmynd Húsmóðurinnar norður!