Víkingur Heiðar spilar í Menningarhúsinu Hofi
Víkingur Heiðar Ólafsson spilar í Menningarhúsinu Hofi sunnudaginn 25. október kl. 20. Tilefnið er 10 ára afmæli Hofs og 50 ára afmæli Listahátíðar í Reykjavík.
Víkingur Heiðar er meðal eftirsóttustu einleikara sinnar kynslóðar. Hann hlaut nýverið hin virtu þýsku tónlistarverðlaun; Opus Klassik sem píanóleikari ársins, annað árið í röð. Nú var hann verðlaunaður fyrir upptöku sína á verkum frönsku tónskáldanna Debussy og Rameau sem hefur hvarvetna hlotið einróma lof. Á tónleikunum í Hofi sem og á opnunartónleikum Listahátíðar í Reykjavík mun Víkingur flytja efnisskrá nýju einleiksplötu sinnar sem kom út hjá Deutsche Grammophon fyrr á þessu ári.
„Það var ógleymanlegt að taka þátt í opnunartónleikum Hofs fyrir 10 árum. Það er því mikið tilhlökkunarefni að koma og halda einleikstónleika á vegum Hofs og Listahátíðar í þessu glæsilega tónleikahúsi í tilefni af 10 ára afmæli hússins,“ segir Víkingur Heiðar.
Kristín Sóley Björnsdóttir, viðburðastjóri í Hofi, segir óvenjulega tíma í viðburðahaldi kalla á nýja möguleika og skemmtileg tækifæri.
„Lítil hugmynd vatt uppá sig og nú eru tónleikar með Víkingi Heiðari í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík hluti af afmælisveitingum okkar. Það er sérstaklega gaman að fá Víking Heiðar í hús á ný og löngu tímabært og um leið fagna ég samstarfi við Listahátíð í Reykjavík. Þetta er bara byrjunin á góðu sambandi vaxandi afmælisbarna.“