Vorsýning Point dansstúdíós
14.05.2014
Hátíðir heimsins er þemað á níundu vorsýningu Point Dansstúdíós. Ferðast er um heiminn og m.a. kíkt á Hrekkjavökuna í Bandaríkjunum, Hátíð ljóssins í Taílandi, Karnivalið í Brasilíu, Holi; hátíð litanna á Indlandi, írskir álfar heimsóttir á St. Patricks dag og nýju ári fagnað á hátíð drekans í Kína.
Vorsýningin verður í Hofi laugardaginn 31. maí. 350 nemendur Point munu koma fram og mikið verður um dýrðir, tilvalin skemmtun fyrir alla fjölskylduna.