Fara í efni
Akureyrarvaka í Hofi
Dags Tími
26 .ágú '23 13:00

Hjónin Tinna Sif og Jacob Wood bjóða upp á 2 klst. workshop í Acro jóga en þau hafa stundað acro jóga um árabil og langar að deila þessum skemmtilegu æfingum með bæjarbúum á Akureyri.

Þau munu fara yfir undirstöðuatriðin í acro jóga, vinna með jafnvægi, styrk og jákvæð samskipti í hinum ýmsu æfingum og leikjum. Það þarf ekki að hafa neina reynslu eða að koma með félaga, bara vilja og áhuga til þess að hreyfa sig, læra eitthvað nýtt og vonandi hlæja svolítið.
Acro jóga er blanda af jóga og fimleikum þar sem tveir eða fleiri vinna saman að því að gera æfingar. Það geta bæði verið æfingar sem oft minna á dans og/eða flæði eða meira slakandi æfingar sem samanstanda af nuddi og teygjum. Þetta er alveg frábærlega skemmtilegar æfingar sem styrkja líkama og sál og góð leið til þess að styrkja hæfileika okkar til þess að tjá okkur og hlusta á og vinna með öðrum.

Þátttakendur eru hvattir til að koma með sínar eigin dýnur með sér. 

Allir eru velkomnir, byrjendur jafnt sem lengra komnir.

Enginn aðgangseyrir