Í ár, sem oftar, fer Ari Eldjárn á flakk með sýninguna Áramótaskop og verður hún sýnd í Hofi menningarhúsi 22. desember. Ari er fyrir löngu orðinn einn allra vinsælasti uppistandari þjóðarinnar og hefur komið fram í sjónvarpsþáttum á borð við Mock the Week og Comedy Allstars Supershow auk þess að hafa í fjórgang tekið þátt í að skrifa Áramótaskaup Sjónvarpsins. Þá hafa sýningar hans “Pardon My Icelandic” og "Eagle Fire Iron" verið settar upp í Edinborg, London, Kaupmannahöfn og Melbourne.
Þetta er fjórða árið sem þessi áramótasýning er haldin en í fyrra seldust allar sýningar upp og mættu um 15.000 manns til að kveðja gamla árið með hlátrasköllum. Fyrir hlé verður árið 2022 í forgrunni og eftir hlé verður víða komið við og allt milli himins og jarðar rætt. Hver sýning er einstök og mun áherslan vera lögð á að kveðja árið með eftirminnilegum hætti.
Ekki missa af þessu einstaka Áramótaskopi!