Hinn óviðjafnanlegi dúett Hundur í óskilum hleypur hæð sína í öllum herklæðum í Hömrum á Akureyrarvöku. Þar verður slegið á fislétta strengi og meðal annars boðið upp á skerandi tóndæmi úr Njálu á hundavaði sem sýnt verður á fjölum Samkomuhússins í haust.
Í tilefni Akureyrarvöku býður Leikfélag Akureyrar upp á 15% afslátt á miðum á mak.is þennan eina dag.
Enginn aðgangseyrir