Fara í efni
Leikfélag MA
Dags Tími
14 .mar '25 20:00
15 .mar '25
16 .mar '25
17 .mar '25
18 .mar '25
19 .mar '25
20 .mar '25
21 .mar '25
22 .mar '25
23 .mar '25
24 .mar '25
25 .mar '25
26 .mar '25
27 .mar '25
28 .mar '25
29 .mar '25
30 .mar '25
31 .mar '25
01 .apr '25
02 .apr '25
03 .apr '25
04 .apr '25
05 .apr '25
06 .apr '25

Galdrakarlinn í Oz- Leikfélag Menntaskólans á Akureyri Söngleikurinn Galdrakarlinn í Oz er byggður á barnabók L. Frank Baum sem kom út um aldamótin 1900. Leikgerðin er byggð á íslenskri þýðingu Bergs Þórs Ingólfssonar, á leikgerð eftir John Kane.

Hvirfilbylur feykir húsi Dórótheu til framandi töfralands og hún, ásamt hundinum Tótó, vill komast aftur heim. Hún ákveður að leita hjálpar hjá Galdrakarlinum í Oz og á leiðinni til hans hittir hún heilalausu Fuglahræðuna, hjartalausa Tinkarlinn og huglausa Ljónið. Það eru því fleiri sem þurfa á hjálp að halda og saman halda vinirnir í mikla ævintýraferð. Sýningin er fyndin og hjartnæm og sannkölluð veisla fyrir allan aldur. Með glæsilegum söng og dans, litríkum búningum og dáleiðandi leikmynd eru leikhúsgestir dregnir inn í töfrandi heim Oz. Hæfileikar og metnaður unga fólksins glæða söguna lífi.

Leikfélag Menntaskólans á Akureyri hefur verið þekkt fyrir metnaðarfullar leiksýningar í fjölda ára en í ár koma hátt í 90 nemendur Menntaskólans á Akureyri að verkinu, hvort sem það er með leik, dansi eða tónlist, markaðssetningu, búninga -og leikmyndahönnun eða hárgreiðslu og förðun. Dóróthea uppgötvar töfra Oz á ný í Hofi 2025, í leikstjórn Egils Andrasonar.

Ath! yngstu leikhúsgestunum gætu þótt einstaka atriði skelfileg.