Sönglög Jórunnar Viðar er hluti af Listviðburðaröð VERÐANDI í tilefni af 10+1 árs afmæli Menningarhússins Hofs.
Á tónleikunum flytja þær Halla Ólöf Jónsdóttir söngkona og Steinunn Hailer Halldórsdóttir píanóleikari nokkur af sönglögum Jórunnar Viðar en í desember 2018 voru 100 ár liðin frá fæðingu hennar. Af því tilefni er ástæða til að halda sígildri og fallegri tónlist hennar áfram á lofti.
Eydís S. Úlfarsdóttir spilar á víólu.