Þessum viðburði verður því miður frestað þar sem fjöldatakmarkanir munu koma í veg fyrir að hann geti farið fram á tilsettum tíma. Unnið er að því að finna nýja dagsetningu og verður hún tilkynnt fljótlega og fá þá allir miðahafar sendar upplýsingar í tölvupósti um nýjan tíma.
Miðar munu gilda áfram en þeir sem ekki geta nýtt miðana á nýju dagsetningunni geta fengið endurgreitt.
-------
Óskars- og BAFTA verðlaunatónlist Hildar Guðnadóttur við JOKER flutt á Íslandi á tónleika-bíósýningu af Kvikmyndahljómsveit Íslands; SinfoniaNord. Stjórnandi verður faðir höfundarins, Guðni Franzson.
Margverðlaunuð kvikmyndatónlist Hildar Guðnadóttur verður flutt í Eldborg þann 31. maí og í Hofi 14. júní.
JOKER fékk tvenn Óskarsverðlaun og þrenn BAFTA verðlaun á þessu ári.
Þar á meðal hlutu Hildur Guðnadóttir, fyrir bestu kvikmyndatónlistina og Joaquin Phoenix fyrir bestan leik í aðalhlutverki, verðlaun á báðum þessum verðlaunahátíðum. Bæði hrepptu þau einnig Golden Globe og Critics’ Choice verðlaun fyrir framlag sitt til kvikmyndarinnar.
Tónlist Hildar er þungamiðjan í tilfinningaþrunginni vegferð aðalpersónunnar Arthur Fleck í kvikmyndinni JOKER. Frábær blanda af hráum vélrænum hljóðheimi ásamt áleitnum og undurfögrum strengjatónum, oft einungis selló, skapar undirtón vonar og óbærilegrar spennu. Einstök tónlist Hildar öðlast nýtt líf í flutningi SinfoniaNord og framkallar alveg nýja upplifun á JOKER, kvikmynd leikstjórans Todd Phillips og margverðlaunaðri túlkun Joaquin Phoenix í aðalhlutverkinu.
Kvikmyndinni verður varpað á risastórt tjald í Hamraborg með tali og áhrifahljóðum um leið og stór sinfóníuhljómsveit SinfoniaNord leikur magnþrungna tónlist Hildar.
Velgengni tónskáldsins á undanförnum misserum á sér nær engin fordæmi. Fyrir tónlist sína í sjónvarpsþáttaröðinni Chernobyl hefur hún hlotið Emmy og Grammy styttur auk fjölda annarra alþjóðlegra verðlauna. Fyrir tónlistina í JOKER bætti hún svo meðal annars við BAFTA verðlaunum og tók nú síðast við sjálfum Óskarnum, fyrst Íslendinga.
Hildur Guðnadóttir: “Það er mér mikið ánægjuefni að fá að sjá og heyra JOKER á kvikmyndasýningu með lifandi sinfóníuhljómsveit. Hljómsveitin kom með svo mikla dýpt og næmni í flutningi sínum þegar við hljóðrituðum tónlistina. Við bókstaflega héldum í okkur andanum meðan á upptökum stóð. Þetta var svo fallegt ferðalag og það gleður mig mjög að áhorfendur fái nú að njóta þess á sama hátt.”
Leikstjórinn, Todd Phillips: “Ég tala fyrir hönd okkar allra þegir ég lýsi ánægju minni með að JOKER verði synd á kvikmyndatónleikum. Að mínu mati er það frábær leið fyrir áhorfendur til að upplifa áleitna tónlist Hildar Guðnadóttir og verða vitni að för Joaquin Phoenix í heim geðveikinnar í hlutverki Arthurs.”
JOKER - LIVE IN CONCERT verður sýnt víða um Evrópu nú í vor á vegum enska viðburðafyrirtækisins Senbla
SinfoniaNord náði nýverið samningum um að flytja stórkostlega tónlist Hildar í Eldborg og í Hofi.
Miðasala hefst þriðjudaginn 10.mars kl. 12.
16 ára aldurstakmark.