Beittur og tælandi söngleikur sem á brýnt erindi við samtíma okkar.
Kabarett eftir Joe Masteroff. Byggt á leikriti eftir John van Druten og sögum eftir Christopher Isherwood. Tónlist eftir John Kander. Textar eftir Fred Ebb.
Velkomin í Kit Kat-klúbbinn í Berlín þar sem allir mega vera það sem þeir vilja. Hér munu skemmtanastjórinn, söngkonan Sally Bowles og kabarettstúlkurnar kynna fyrir þér tryllta og myrka afkima næturlífsins þar sem allt er leyfilegt nema áhyggjur og hversdagsleiki.
Árið er 1931. Við fylgjumst með Sally og rithöfundnum Cliff lifa og hrærast í skemmtanalífi Berlínar en á meðan íbúarnir fljóta sofandi að feigðarósi eykst hryllingurinn í kringum þá og tilveran breytist í martröð. Söngleikurinn Kabarett var frumfluttur á Broadway árið 1966 og naut strax mikillar hylli. Síðar sló samnefnd kvikmynd Bob Fosse með Lizu Minelli í aðalhlutverki umsvifalaust í gegn og hlaut átta Óskarsverðlaun árið 1973. Upprunalega framleitt og leikstýrt í New York af Harold Prince. Flutt með leyfi Nordiska Aps – Kaupmannahöfn.
Leikstjóri: Marta Nordal
Tónlistarstjóri: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
Leikmynd og búningar: Auður Ösp Guðmundsdóttir
Danshöfundur: Lee Proud
Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson
Hljóð: Gunnar Sigurbjörnsson
Þýðing: Karl Ágúst Úlfsson
Leikarar: Andrea Gylfadóttir, Birna Pétursdóttir, Hákon Jóhannesson, Hjalti Rúnar Jónsson, Jóhann Axel Ingólfsson, Ólöf Jara Skagfjörð, Karl Ágúst Úlfsson, Fanný Lísa Hevesi, Unnur Anna Árnadóttir, Berþóra Huld Björgvinsdóttir, Steinar Logi Stefánsson og Örn Smári Jónsson.
Sýningin er samstarfsverkefni allra sviða Menningarfélags Akureyrar