Bangsímon, kanínur, hundar, fuglar og býflugur........fjölskyldutónleikar!
Tvö lítil tónlistarævintýri sem eru sett saman og túlkuð af flautukór nemenda úr Tónlistarskólanum á Akureyri og í Kópavogi. Klassísk tónlist og jazz mynda hljóðheim skemmtilegrar sögu sem dregur alla með sér inn í ævintýraheim með aðstoð Hildar Gauju Svavarsdóttur sögumanns.
Öll flautufjölskyldan fær að hljóma, frá kontrabassaflautu upp í pikkóló flautu.
Enginn aðgangseyrir.
Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar.