Hér er leikskráin!
Þeir eru komnir aftur! Eftir að hafa farið á hundavaði um sögu íslensku þjóðarinnar í þremur brakandi skemmtilegum sýningum – Sögu þjóðar, Öldinni okkar og Kvenfólki – snýr hinn óviðjafnanlegi dúett Hundur í óskilum aftur og ræðst á einn af hornsteinum íslenskrar menningar – sjálfa Njálu.
Njála, sýning Borgarleikhússins sem sló svo eftirminnilega í gegn á síðasta ári, er drepfyndin sýning þar sem þeir Hjörleifur Hjartarson og Eiríkur Stephensen stökkva meira en hæð sína í öllum herklæðum í gegnum skrautlegt persónugallerí Njálu. Við sögu koma taðskegglingar, hornkerlingar, kinnhestar, kartneglur og þjófsaugu svo fátt eitt sé nefnt.
Leikarar: Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson
Höfundur: Hjörleifur Hjartarson
Leikstjórn: Ágústa Skúladóttir
Tónlist: Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson
Leikmynd og búningar: Þórunn María Jónsdóttir
Lýsing: Ingi Bekk
Hljóð: Þorbjörn Steingrímsson
Leikgervi: Elín S. Gísladóttir og Þórunn María Jónsdóttir.