Söngvarana Erlu Þorteins og Hauk Morthens kannast flestir við enda voru þau vinsælustu söngvarar á Islandi á 20 öldinni. Erla Þorsteins var ein ástsælasta söngkona 20. aldarinnar og var oft kölluð stúlkan með lævirkjaröddina, Haukur Morthens hóf feril sinn 19 ára með hljómsveit Bjarna Böðvarssonar og þá eignaðist þjóðin einn sinn frægasta, ástsælasta og þekktasta dægurlagasöngvara fyrr og síðar. Við rifjum upp í tali og tónum feril Erlu og Hauks en á tónleikunum er sögumaður.
Hver man ekki eftir lögum eins og Þrek og tár - Til eru fræ- Ó borg mín borg- Litli tónlistarmaðurinn
Hljómsveitarstjóri: Magnús Þór Sveinsson
Sögumaður og kynnir: Valgerður Erlingsdóttir
Hugmynd og lagaval: Hulda Jónasdóttir og Gná tónleikar.
Útsetningar: Magnús Þór Sveinsson
Söngvarar kvöldsins:
Daníel Arnar
Hreindís Ylva
Svavar Knútur
Hildur Vala
Hljómsveit kvöldsins:
Magnús Þór hljómborð
Páll Sólmundur bassi
Ragnar Már saxófónar og fleiri blásturshljóðfæri
Sigurður Ingi trommur
Yngvi Rafn gítarar
Hlökkum til að sjá ykkur