Fara í efni
Dags Tími
27 .apr 17:00
Verð: Enginn aðgangseyrir

UPPTAKTURINN – tónleikar!

Hamraborg í Hofi
Sunnudaginn 27. apríl kl 17

Flutt verða átta glæný lög eftir ungmenni á aldrinum 10-16 ára sem útsett eru af tónlistarfólkinu Gretu Salóme og Kristjáni Edelstein fyrir hljómsveit. Atvinnuhljóðfæraleikarar flytja verk ungmennanna á stóra sviðinu í Hamraborg.

Ungmennin sjö hafa unnið með listafólkinu að útsetningu laga sinna og nú er uppskeruhátíð! Þar sem þau sitja út í sal og njóta afrakstursins ásamt gestum hússins.

Verkin átta voru valin af dómnefnd úr fjölda umsókna, sem bárust í Upptaktinn í ár.

Ungtónskáld Upptaktsins 2025 eru:

Alex Parraguez Solar

Hákon Geir Snorrason

Heimir Bjarni Steinþórsson

Hjördís Emma Arnarsdóttir

Hjörtur Logi Aronsson

Ísólfur Raymond Matharel

Lára Rún Keel Kristjánsdóttir

 

Hljómsveitina skipa:

Emil Þorri Emilsson – slagverk og trommur

Greta Salóme – fiðla og söngur

Kristján Edelstein – gítar

Stefán Ingólfsson – bassi

Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir - selló

Þórður Sigurðarson – hljómborð og harmonika

 

Útsetning verkanna fyrir hljómsveit: Kristján Edelstein og Greta Salóme.

Tónlistarstjóri: Greta Salóme.

Upptakturinn í Hofi er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Upptaktsins í Hörpu, styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands eystra.

Upptakturinn er þátttakandi í Barnamenningarhátiðinni á Akureyri.