Winter Lullabies and Summer Jazz er hluti af Listviðburðaröð VERÐANDI í tilefni af 10+1 árs afmæli Menningarhússins Hofs.
Diana Sus heldur útgáfutónleika sína hér í Hofi þar sem hún spilar lög af sinni fyrstu sóló smáskífu "Winter Lullabies" ásamt úrvali af eldheitum sumardjassi.
Smáskífan er hluti af stærra verkefni þar sem hver hluti er tileinkaður sinni árstíð. "Winter Lullabies" er tileinkuð löngum íslenskum veturum og þá sérstaklega þessum "Covid-vetri" þar sem minningum af sumri og vinum er fagnað. Diana mun einnig syngja lög sem eru ekki enn hljóðrituð. Píanó snillingurinn Risto Laur spilar undir.
Diana Sus er tónskáld og söngkona sem hefur útskrifast af deild Skapandi Tónlistar í Tónlistarskólanum á Akureyri. Hún hefur unnið við margvísleg verkefni. Haldið tónleika, unnið við upptökur á hljómplötu sinni í fjórum hlutum. "Winter Lullabies" hefur verið samstarf við Sigfús Jónsson úr Hljómbræður Stúdíó ehf og hlaut styrk frá Menningarsjóði Akureyrarbæjar.
Hljómsveitina skipa:
Diana Sus - söngur
Kjartan Valdimarsson - Piano
Palmi Gunnarson - kontrabassi
Ingvi Rafn - trommur